jæja.. getið hver? ...enginn annar en hann Jói Dagur enn og
aftur að tjá sig hérna.. sup? ég er bara ferskur.. er bara búinn að
vera að semja á fullu dag og nótt (búinn að vera að krota rímur og
fikta við taktagerð í alla nótt hehe) og það er allt í gangi.. er
núna stundandi nám í VA sem skammstafar Verkmenntaskóli Austurlands
(getur líka skammtafað Vast Aire sem er töffari) eftir minn
brottrekstur úr FB og er mín víst sárt saknað þar (hef ég
heyrt, sel það ekki dýrara en ég keypti það hehe).
En já, ég átti skemmtilegar samræður áðan við eina vinkonu
mína og við komumst að einu.. Kvenfólk barasta
hreinlega skilur ekki karlmenn og karlmenn skilja kvenþjóðina
engannveginn á móti. Og ég fór svo að pæla, ég myndi
ekkert vilja vera með stelpu sem ég myndi skilja alveg fullkomlega
og allt og hún á móti, því þá væri ekkert gaman.. það væri ekkert
líf í sambandinu, you catch my drift. Og ef maður vill vera með
einhverjum sem maður skilur til fulls þá er maður hreinlega
bara gay.. eins og ég elska allt kvenfólk (sumt meira en annað) og
ég held að sá kvenmaður sem ég hef nokkurntíman skilið á
lífsleiðinni sé barasta ekki til.. allavega dettur mér enga í hug.
Og ég stórefa að stelpur skilji mig eitthvað
frekar.. Gott dæmi: Ég rakst á blogg um daginn hjá einni
vinkonu minni þar sem hún var alveg bara tautandi og röflandi um að
hún skilji enganveginn karlmenn og bara fatti þá engannveginn, en
við skiljum ykkur samt ekki heldur, við bara höfum lágt um það hehe
.. en svona er þetta bara, ykkur er ekki ætlað að skilja okkur
og okkur er ekki ætlað að skilja ykkur. Ég er allavega mjög viss um
það.. auk þess held ég að kvenfólk myndi allt verða samkynhneigt
eða barasta ókynhneigt ef það myndi skilja okkur karlmenn 100% og
fatta hvað er í gangi í hausnum hjá okkur (ætla ekki að lýsa því
hér) eða bara forðast okkur alveg og gerast rauðsokkar or sum.
Svona eru samskipti og hugsanir kynjanna út frá mínu
sjónarhorni.
Bara, þú þarft ekki að skilja þann sem þú elskar...held ég, ég veit
ekki alveg hvað ást er.. ást er eikkað sem er langt yfir minn
skilning þar sem ég er varla hálfnaður með ævina..
ég held samt að ást sé bara geðsjúkdómur eða eitthvað hehe.. en
núna þegar ég minnist á þetta hugtak "ást" þá fór ég að pæla í
einu... hvað er þetta sem fólkið kallar "ást við fyrstu sýn" ?
Sko, ég veit að ég er bara einhver 16 ára gutti sem er búsettur út
á landi og veit ekki ennþá hvað ást er en.. ég veit líka að
ást við fyrstu sýn er ekki til.. Segjum svo að það sé
gaur sem sér eina stelpu í fyrsta skipti og er alveg
bara slefandi því hún er svo falleg og getur ekki hætt að hugsa um
hana næstu daga því hún er svo falleg og vill fátt meira en að fá
að halda utanum hana.. og svo heldur hann áfram að sjá
hana á röltinu og í skólanum og svona og bara getur ekki hætt
að hugsa um hana en kynnist henni aldrei á lífsleiðinni
en hugsar samt stöðugt um hana og þessháttar.. Er
það þetta sem fólkið kallar ást við fyrstu sýn? Elskar
gaurinn stelpuna? svör við báðum spurningum: Já þetta er gott
dæmi um það sem kallað er ást við fyrstu sýn og NEI hann
elskar hana ekki.. Afhverju? Nú, hvernig geturu elskað
manneskju sem þú þekkir ekki? Það er örugglega fjandi erfitt held
ég..
Sko, ég held ekki, ég bara veit að það er stór munur á
því að vera ástfanginn og hugfanginn (og ég tek það aftur
fram..þótt ég viti ekki hvað ást er). Ég held allavega að maður
þurfi að kynnast einhverjum áður en maður geti sýnt viðkomandi ást,
þannig að ást við fyrst sýn er ekki til. Þetta ætti að heita "ást"
við fyrstu sýn því það getur allavega ekki mikil ást verið í garð
annarrar manneskju án þess að maður þekki hana. Eða svona er mín
hugsun varðandi þetta hugtak "ást við fyrstu sýn" og þið megið
alveg mæla gegn henni, bara færið rök fyrir ykkar svari. 
En samt, þótt ég viti ekki ennþá hvað ást er þá elska ég
samt allt kvenfólk fyrir að vera til þótt ég skili
það bara alls ekki en það er normal að skilja það ekki
þegar maður er gaur 
þannig að í fáum orðum sagt þá er það sem ég hef
verið að reyna að segja hér að ofan:
- Ég veit ekki hvað ást er ennþá (og örugglega ekki heldur Maggi
og Daði og örugglega ekki þú heldur)
- Ást við fyrstu sýn ætti frekar að kallast "ást" við fyrstu
sýn því ást byggist ekki upp þannig
- Karlmenn skilja ekki kvenfólk og kvenfólk skilur okkur ekki
heldur og það er normal
- Ég elska allt kvenfólk (sumt meira en annað)
takk fyrir að þykjast kunna að lesa og endilega kommentaðu.. ég
er farinn að gera eitthvað annað og já.. góðann daginn.. pís